Íbúðin er á frábærum stað í bænum. Hún er á neðri hæð í tvíbýli. Íbúðin er leigð með húsgögnum og svefnstæðum fyrir 6 manns. Íbúðinni fylgja 8 sængur og koddar en leigjandi skaffar sjálfur rúmföt. Leigjandi skaffar sjálfur salernispappír, viskustykki og borðtuskur. Þvottavél er í íbúðinni. 1 rúm 160 cm / 1 rúm 140 cm / efri og neðri koja 70 -80 cm. Íbúðin er rétt við Glerártorg, stutt í bakarí, Bónus ofl. Leigjandi skaffar sjálfur rúmföt. Allt dýrahald er bannað í orlofsíbúðinni Lyklabox er við útidyrahurðina
Húsið er leigt með húsgögnum og svefnstæðum fyrir 6 – 8 manns. Húsinu fylgja 8 sængur og 8 koddar en leigjandi skaffar sjálfur rúmföt. Borðbúnaður er fyrir 12 manns. Til staðar er gasgrill og flest almenn raftæki, þ.á.m. Þvottavél, þurkari, sjónvarp, DVD, útvarp með geislaspilara og örbylgjuofn. Barnastóll og barnarúm er í húsinu. Leigjandi skaffar sjálfur salernispappír, viskustykki og borðtuskur. Allt dýrahald er bannað í orlofshúsinu Í Brekkuskógi er fjöldi góðra gönguleiða. Laugarvatn, Gullfoss og Geysir. Stutt er í margvíslega afþreyingu svo sem sundlaugar, hestaleigur, húsdýragarð og golfvelli. Hægt að kaupa sumarhúsaáskrift í Birkihlíð Brekkuheiði 15.
Húsið er leigt með húsgögnum, svefnstæðum, borðbúnaði og öðrum lausamunum sem ekki verða taldir upp í samningi þessum. Leigjandi ber ábyrgð á húsinu og öllum búnaði meðan á leigutíma stendur og skuldbindur sig til að bæta það tjón sem verða kann af hans völdum, eða þeirra sem þar dvelja á leigutíma. Leigjanda ber að tilkynna strax til umsjónarmanns eða félagsins allar skemmdir sem kunna að verða. Leigjandi skaffar sjálfur rúmföt, (sænguver og lök) ásamt salernispappír Ef gasið klárast má nálgast nýjan kút í þjónustumiðstöð. 2 rúm 160 cm, 1 rúm 140 cm og tvær kojur 80 cm
Í íbúðinni eru 2 svefnherbergi. Í öðru er hjónarúm og í hinu eru tvö einbreið rúm og í stofu er svefnsófi. Búnaður íbúðarinnar miðaður við að 6 geti gist þar. Frá 21. febrúar 2021 verða þrif innifalin.