Félagið á fimm íbúðir í Álalind 2, um er að ræða fjórar fjögurra herbergja íbúðir (s.s. 3 svefnherbergi) (203, 204, 303 og 304) og eina þriggja herbergja íbúð (s.s. 2 svefnherbergi) (405). Sér bílastæði í bílakjallara fylgir hverri íbúð. Íbúðirnar eru í 5 hæða fjölbýlishúsi sem stendur við Álalind 2 í austurhluta nýs íbúðahverfis, Glaðheima, í Kópavogi. 25 íbúðir eru í fjölbýlishúsinu og er bílageymsla undir því. Íbúðahverfið liggur austan megin við Reykjanesbraut og felst sérstaða þessa íbúðarsvæðis m.a. í því hversu miðsvæðis það er og í vaxandi svæðiskjarna höfuðborgarsvæðisins, Smáranum. Frábær staðsetning, stutt í stofnæðar höfuðborgarsvæðisins og Smáralind. Þrif eru innifalin, en auðvitað þarf að skila íbúðinni full frágenginni og snyrtilegri. Gengið er um inngang A í íbúð 203 og 303 Gengið er inn um inngang B í íbúð 204 og 304 Leigjandi þarf ekki að þrífa íbúðina eftir leigutíma, en auðvitað þarf að skila henni full frágenginni og snyrtilegri Það þarf að flokka allt sorp og setja í þartilgerðar tunnur í bílageymslunni. ATH! Þegar sótt er um sumarúthlutun er einungis hægt að velja Höfuðborgarsvæðið, ekki einstaka íbúð.
Félagið á tvær íbúðir í Ásholti 2 í Reykjavík. Önnur íbúðin sem félagið á er notuð sem sjúkraíbúð og er á 3. hæð. Hin íbúðin er á 4. hæð og er einstaklega glæsileg. Hún er fjögurra herbergja (s.s. 3 svefnherbergi) , 107 fermetrar að stærð. Stærð á rúmum: Hjónarúm 160 cm, koja (neðri 120 cm og efri 90 cm) 2* 90 cm rúm Gengið er inn í húsið frá Laugavegi, en ekið er inn í bílageymsluna úr Mjölnisholti. Leigjandi þarf ekki að þrífa íbúðina eftir leigutíma, en auðvitað þarf að skila henni full frágenginni og snyrtilegri. Það þarf að flokka allt sorp og setja í þartilgerðar tunnur í bílageymslunni.
Líklega þekkja færri fegurð Vestfjarða af eigin raun en ýmissa annarra svæða á landinu - en fegurðin er ekki minni fyrir þá sök! Vatnsfjörður á Barðaströnd er fullur af sögu og þar er líka fagurt um að litast. Flókalundur í Vatnsfirði hefur um árabil verið meðal vinsælli sumardvalarstaða landsins. Barðaströndin er á „suðurströnd“ Vestfjarðakjálkans og þar er mjög veðursælt, gróðursælt og skjólgott. Fjölmargir áhugaverðir staðir eru í nágrenninu og má til dæmis nefna Látrabjarg og Rauðasand. Ótal tækifæri eru fyrir þá gesti sem njóta vilja náttúruskoðunar og þarna er líka sagan við hvert fótmál. Talið er að Hrafna-Flóki hafi dvalið í Vatnsfirði þegar hann gaf Íslandi nafn og þá meðal annars gengið upp á Lónfell. Í Flókalundi er sundlaug með heitum pottum. Þá er vert að benda á áhugaverðan valkost sem er að nota Breiðafjarðarferjuna Baldur en hún siglir milli Brjánslækjar í Vatnsfirði og Stykkishólms með viðkomu í Flatey. Þarna eru því margir möguleikar á styttri og lengri ferðum fyrir dvalargesti í orlofshúsum. Orlofshús Einingar-Iðju í Flókalundi er 40 fermetrar að stærð með svefnplássi fyrir að minnsta kosti fimm manns (sex sængur fylgja). Á Hótel Flókalundi er veitingastaður og bensínafgreiðsla. Talnalás er á húsinu. Upplýsingar eru á leigusamningi.
Eining-Iðja á samtals fjórtán orlofshús á Illugastöðum en nokkur þeirra eru leigð til annarra stéttarfélaga yfir sumarið í skiptum fyrir orlofshús annars staðar á landinu. Eitt af húsum félagsins er sérstaklega útbúið fyrir fatlaða einstaklinga, hús nr. 26. Á Illugastöðum er meðal annars sundlaug og heitur pottur. Lítil verslun er í þjónustumiðstöðinni. Sundlaugin og verslunin eru lokuð yfir veturinn. Leikvöllur er á svæðinu með skemmtilegum leiktækjum fyrir börnin, m.a. ærslabelg. Stutt er yfir í Vaglaskóg þar sem miklir möguleikar eru til gönguferða. Komutími í hús yfir veturinn; kl.16:00 Þjónustumiðstöðin er opin (til að fá lykil að húsi); mánudaga til miðvikudaga kl.16:00 til 17:00, fimmtudögum kl.16:00 til 18:00, föstudögum kl.16:00 til 21:00. Ef komið er utan ofangreindra tíma er mjög nauðsynlegt að láta vita af því á símatíma (462-5909) sem er kl.13:00-17:00 mánudag til fimmtudags og kl.13:00 til 21:00 á föstudögum. Sjá nánar á heimasíðu orlofsbyggðarinnar
Eining-Iðja á samtals fjórtán orlofshús á Illugastöðum en nokkur þeirra eru leigð til annarra stéttarfélaga yfir sumarið í skiptum fyrir orlofshús annars staðar á landinu. Eitt af húsum félagsins er sérstaklega útbúið fyrir fatlaða einstaklinga, hús nr. 26. Á Illugastöðum er meðal annars sundlaug og heitur pottur. Lítil verslun er í þjónustumiðstöðinni. Sundlaugin og versluninni eru lokuðyfir veturinn. Leikvöllur er á svæðinu með skemmtilegum leiktækjum fyrir börnin, m.a. ærslabelg. Stutt er yfir í Vaglaskóg þar sem miklir möguleikar eru til gönguferða. Komutími í hús yfir veturinn; kl.16:00. Þjónustumiðstöðin er opin (til að fá lykil að húsi); mánudaga til miðvikudaga kl.16:00 til 17:00, fimmtudögum kl.16:00 til 18:00, föstudögum kl.16:00 til 21:00. Ef komið er utan ofangreindra tíma er mjög nauðsynlegt að láta vita af því á símatíma (462-5909) sem er kl.13:00-17:00 mánudag til fimmtudags og kl.13:00 til 21:00 á föstudögum. Sjá nánar á heimasíðu orlofsbyggðarinnar